Þar sem að það styttist í að sumarið verður
búið og jólin var að koma þá er ég
farin að skipuleggja jóla-skvísuferð 
Gaman væri ef það væri hópur sem færi til
Köben og
gætu það verið vinkonur,frænkur, mæðgur eða þess vegna bara
nágrannar sem mundu slá til og fara allar saman.
Ég veit nú ekki betur til en að Íslendingar sem
mest H&M sjúkasta þjóð í heimi svo okkur
ætti ekki að leiðast að fara að versla á Strikinu eða í
Field´s.
Jólativoli verður opnað 16.nóv.og er algjört möst
að fara í það og fá sér julebrygg og æbleskiver. 
**Hugmyndir sem hægt væri að gera
meira**
::
Fara að borða á Hard rock cafe, Herreford eða
á Brygghuset.
::
Algjört möst að fá sér Smörrebrod niðrí
Nyhavn 
::
Kíkja á kaffihúsið inní Illum...það er algjört æði
-------Endalaust
fjör-------
Endilega ef þú ert til að koma
með barnlaus, kallalaus og með góða skapið þá vertu í bandi

ps.fleiri hugmyndir af góðri ferð
vel þegnar
